|
|
|
|
Strikamerkjavinnslur
Í birgðakerfinu er að finna möppu sem inniheldur strikamerkjavinnslur. Hægt er að búa til strikamerki, bæði skv. EAN-13 staðli og eigin strikamerki til notkunar innanhúss. Prenta má út hillumiða með strikamerki og margs konar strikamerkjalímmiða.
Tafla yfir strikamerki Strikamerki má skrá á vöru á tveim stöðum í dk. Annars vegar í vörutöflunni og hins vegar í möppunni Strikamerkjavinnslur.
 veldu mynd til að stækka
Ef valið er að skrá inn strikamerki með því að velja frá aðalvalmynd birgða Strikamerkjavinnslur > Strikamerki þá þarf að skrá inn vörunúmer og strikamerkið. Ef valið er að skrá inn strikamerki með því að velja frá aðalvalmynd birgða Vörur > finna viðeigandi vörunúmer og velja F5 Valmynd > Strikamerki þá þarf einungis að skrá inn strikamerkið.
Aðgerðir Nokkrar aðgerðir bjóðast í tenglsum við strikamerkjatöfluna. Velja má | Til að ... | Búa til strikamerki | Búa til eigin strikamerki. Áður þarf að vera búið að fara í Uppsetningu og gefa upp forskeyti (EAN) og úthlutaða númeraseríu sem sækja þarf sérstaklega um hjá EAN á Íslandi. Ef uppsetningin er rétt uppsett þá má búa til strikamerki á vörunúmer, eitt eða fleiri eða á vöruflokk(a). | Finna ólögleg strikamerki | Finna ólögleg strikamerki. Kerfið skoðar allar færslur í strikamerkjatöflunni og athugar hvort þau séu ekki í lagi, þ.e. leyfileg. | Finna vörunúmer án strikamerki | Finna öll vörunúmer sem ekki hafa skráð strikamerki. Afmarka má við Vörunúmer, Vöruflokk og/eða Tegund vöru. Prentaður er út listi á skjá eða prentara. |
Uppsetning
Ef þörf er á því að útbúa strikamerki sem fara með vörunni út úr húsi, þá þarf að sækja um leyfi til þess hjá EAN á Íslandi. EAN á Íslandi úthlutar númeraseríu og forskeyti á hana. Til að skrá þessa seríu og forskeytið inn veljum við frá aðalvalmynd birgða Strikamerkjavinnslur > Uppsetning Merkja þarf í Leyfa úthlutun á strikamerkjum og velja EAN – 13 í Tegund strikamerkis. Síðan er númeraserían skráð inn í Úthluta frá og Úthluta til. Að lokum er Forskeytið skráð inn. Kerfið sér síðan um að viðhalda stöðu teljara.
Límmiðar Hægt er að prenta út límmiða með strikamerki, vörunúmeri, vöruheiti og verði.
 veldu mynd til að stækka
Strikamerkjalýsing Strikamerkjalýsingu þarf að setja upp fyrir límmiðaprentun. Með dk fylgja nokkrar tilbúnar lýsingar fyrir t.d. Zebra LP2844 og Datamax prentara.
Sýnishorn af strikamerki prentuðu í dk (stærð 30 x 12 mm)
 veldu mynd til stækka
Helstu kostir:
• Mikill sveigjanleiki • Engar takmarkanir
|
|
|