|
|
|
|
Lánardrottnar
Í lánardrottnakerfinu er haldið utan um lánardrottna fyrirtækisins. Það veitir góða yfirsýn yfir ógreidda reikninga frá lánardrottnum, hvaða viðskipti hafa átt sér stað við þá og hvernig og hvenær þeir hafa fengið greitt.
Markmiðið með lánardrottnakerfinu í dk er að auðvelda fyrirtækjum sem eiga viðskipti við marga lánardrottna að halda vel utan um þau.
 veldu mynd til að stækka
Grunnur lánardrottna hefur að geyma lánardrottna og vinnslur til að skrá og greiða reikninga. Öflugar uppflettivinnslur eru sem auðvelda allar fyrirspurnar- og leitaraðgerðir. Færslur má rekja þangað sem þær enda, í fjárhag, eða til upprunans í hvaða undirkerfi sem er.
Lánardrottnar Í stofnskrá lánardrottna má skrá margs konar upplýsingar. Hver lánardrottinn er auðkenndur með númeri sem getur verið allt að 12 stafa langt, bæði bók- og tölustafir. Almennar upplýsingar fylgja svo sem nafn, heimilisfang, flokkun, merking, samskiptaupplýsingar, afhendingarskilmálar, afhendingarmáti, starfsmaður, tengiliðir, jöfnunaraðferð, greiðsluskilmálar og greiðslumáti.
Skrá reikninga Í lánardrottnakerfinu er haldið utan um alla reikninga sem berast fyrirtækinu. Hægt er að rekja stöðu þeirra á hverjum tíma. Þegar reikningur er skráður má um leið skrá allar upplýsingar sem tengjast greiðslu hans, svo sem þær upplýsingar sem skráðar eru á gíróseðil eða innheimtuseðil. Þær upplýsingar eru síðan notaðar við sjálfvirka greiðslutillögu og greiðslu í gegnum bankalínu. Þegar reikningur hefur verið samþykktur og honum úthlutað á viðeigandi gjaldalykla er hann bókaður (uppfærður).
Samþykktarkerfi Flestir sem komið hafa að rekstri meðalstórra og stærri fyrirtækja þekkja vandræðin þegar enginn veit hvar reikningur er staddur í fyrirtækinu, hver hafi skrifað upp á hann, hvort hann sé greiddur, tvígreiddur eða rangfærður. Sam-þykktarkerfið minnkar hættuna á slíkum vandamálum með því að halda utan um alla reikninga sem eru skráðir inn og gerir viðkomandi aðilum kleift að rekja stöðu þeirra á hverjum tíma.
Greiða reikninga Í lánardrottnakerfinu er öflug vinnsla til að greiða reikninga. Vinnslan safnar saman öllum ógreiddum reikningum miðað við tiltekinn eindaga. Síðan má velja þá reikninga sem á að greiða og útbúa greiðsluskrá til banka.
Öflugar uppflettivinnslur (fyrirspurnir) Allar uppflettingar og fyrirspurnir eru til fyrirmyndar í lánardrottnakerfinu. Haldið er vel utan um allar færslur og hvernig þær urðu til. Almennar uppflettingar eru þannig að skoða má hreyfingar á einstökum lánardrottnum.
Mikill fjöldi skýrslna Í lánardrottnakerfinu er að finna aragrúa af skýrslum, bæði stöðluðum og uppsetjanlegum. Í lánardrottnum er undirvinnsla sem heitir Skýrslur. Hún inniheldur allar staðlaðar skýrslur sem nauðsynlegt er að ná út úr lánardrottnum. Allar skýrslur má fá prentaðar á skjá eða prentara, einnig má prenta út í skrá (Csv, Pdf eða Html format) og senda skýrslur í tölvupóst (sem Pdf skjal eða Html skjal).
Afstemmingar Jafnanir framkvæmast að öllu jöfnu sjálfvirkt þó getur verið undantekning á því og þarf notandi þá að jafna sjálfur saman greiðslum á móti reikningum. Það má gera með því að velja vinnsluna Afstemmingar. Þegar sú vinnsla er valin birtist tafla yfir alla lánardrottna sem sýnir stöðu hvers lánardrottins m.t.t. jöfnunar.
Lánardrottnagreining Í lánardrottnakerfinu er að finna öfluga greiningarvinnslu. Hún hjálpar til við að sjá yfirlit yfir lánardrottnakerfið á samandregnu formi.
Vörulisti lánardrottna Í lánardrottnakerfinu má halda utan um vörulista lánardrottna. Taka má á móti vörulista rafrænt (EDI).
Helstu kostir:
• Mjög ítarleg lánardrottnaskrá • Öflugar uppflettivinnslur • Víddir • Heildaryfirsýn • Öflugar bankavinnslur • Greiðslutillögur • Öflug greiningartól • Rafræn móttaka og sending á gögnum (vörulistar, vörureikningar og greiðslur) • Heldur utan um vörulista lánardrottna • Öflugt samþykktar- og beiðnakerfi
|
|
|