15.06.10 | Bókunarkerfi
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf
15.03.10 | dk Framtal - einstaklingsframtal
 
Sjá eldri fréttir
   
Leit:
15.06.10 | Besta, með heildarlausn frá dk hugbúnaði ehf

Besta ehf er eitt af þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem nýverið hafa kosið 
að nota heildarlausn dk hugbúnaðar ehf fyrir starfsemi sína.

Besta ehf er sérhæft fyrirtæki á hreinlætisvörumarkaði og býður eitt
mesta úrval landsins af hágæða tækjum, áhöldum og efnum til
hreingerninga.
Höfuðstöðvar Besta eru í Ármúla 23 í Reykjavík en einnig eru útibú
í Reykjanesbæ, á Egilsstöðum og á Neskaupsstað.

Linda Björk Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri Besta ehf segir 
innleiðingu dk hugbúnaðar hafa gengið hreint ótrúlega vel. 
,,Á mjög stuttum tíma voru allar upplýsingar úr eldra tölvukerfi
komnar inn í nýja kerfið.   dk hugbúnaður er einfalt og þægilegt kerfi
sem allir starfsmenn okkar voru fljótir að læra á.  
Þjónustan við innleiðinguna var sérlega góð og við fengum góðan
stuðning frá starfsmönnum dk hugbúnaðar ehf.  Við erum mjög ánægð.”

Opnunartímar Besta eru alla virka daga frá kl. 8:00-18:00 og
laugardaga á milli 11:00 og 14:00.


« til baka